14.03.1933
Efri deild: 24. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í C-deild Alþingistíðinda. (4958)
96. mál, eignarnámsheimild á nokkrum löndum og afnotarétti landsvæða í Hafnarfirði
Guðrún Lárusdóttir:
Hv. flm. heldur, að kvenfélagið Hringurinn þurfi ekki meira en 20 ha. af landi í Kópavogi, en um það getur hann náttúrlega ekkert sagt. Starfsemi félagsins þarna er enn á byrjunarstigi, en af því, sem þegar er séð, má gera ráð fyrir, að hún geti orðið mikil þegar fram í sækir. Ég hygg, að félagskonur Hringsins eigi eftir að setja þarna upp fyrirmyndarbúskap í stórum stíl, sem auðvitað byggist á mikilli ræktun. Og við höfum reynslu fyrir því, hvað konur geta, ef þær leggjast á eitt, og má í því samb. benda á dæmi eins og byggingu landsspítalans. Þessar fáu konur, sem félagið stofnuðu, unnu mikið og þarft verk með byggingu hælisins, því það kom brátt í ljós, að þetta eina heilsuhæli, sem ríkið átti þá, Vífilsstaðir, gat ekki tekið á móti öllum sjúklingum, er þangað sóttu, og þá kom þetta hæli í góðar þarfir, einkum til þess að taka við þeim sjúklingum, sem voru orðnir svo heilbrigðir, að þeir þurftu ekki að vera lengur á Vífilsstöðum, en þoldu þó ekki að vinna. Hressingarhælið í Kópavogi uppfyllti því og uppfyllir enn brýnustu nauðsyn.
Hv. þm. sagði, að ríkið greiddi daggjöld sjúklinga í hressingarhælinu í Kópavogi. Þetta er alveg rétt, því þess var ekki að vænta, að lítið félag gæti án nokkurs styrks rekið svona hæli, enda hefir það líka verið ríkisviðurkennt, og því getur ekki komið til mála, að einstaklingar verði látnir greiða þar sinn dvalarkostnað fremur en á öðrum berklahælum, bar sem lögin mæla svo fyrir, að það sé skylda ríkisins að greiða slíkan kostnað.
Það er óhætt að fullyrða, að Hringskonurnar hafa ekki grætt neitt sjálfar á þessu fyrirtæki, og oft hefir róðurinn verið þungur fyrir þeim. En mér finnst það koma úr hörðustu átt frá manni, sem tilheyrir stefnu, er skreytir sig með því að vera hlynnt mannúðarmálum, að hann skuli nú vilja gera þessum konum erfiðara fyrir í mannúðarstarfsemi þeirra en þörf er á.