17.03.1933
Efri deild: 27. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 760 í C-deild Alþingistíðinda. (4984)
103. mál, æðsta dóm
Jón Baldvinsson:
Ég kærði mig ekkert um að fara út í einstök atriði í því, sem ég sagði áður, heldur talaði ég aðeins almennt um frv. Hv. flm. var hissa á því, að ég gæti ekki verið með frv., þar sem ég væri þó samþykkur aðalbreyt., um að fjölga dómendum um tvo. En þó þetta sé svo, þá er svo margt annað við frv., sem ég tel athugavert og gallað, að ég get, þrátt fyrir þennan eina kost þess, ekki fylgt því. Og eitt er það í sambandi við þetta, sem hv. flm. verður að gera sér ljóst, og það er, að ég treysti þeirri stj., sem nú situr, ekki til að skipa í þessi sæti annað en tóma íhaldsmenn. Eins og nú stendur, er það íhaldssamari hluti Framsfl., sem situr í stjórn með íhaldinu. Og ég hefi enga góða trú á þeim afkvæmum, sem koma úr því íhaldsbæli.
Hefi ég þá skýrt mitt viðhorf, sem veldur því, að ég vil ekki ljá mitt atkv. með því, að frv. þetta gangi lengra.
Hv. þm. (JónJ) minntist á ummælin, sem ég hafði eftir dómaranum, og var mér sammála um, að þetta væri svívirðilegt athæfi og að sá dómari, sem þau viðhafði, hefði átt að hverfa sem fyrst úr dómarasæti. Ég vil taka undir það með hv. þm., að sá dómari, sem veit sig hafa haft þessi ummæli, hann ætti þegar í stað að draga sig í hlé. (JónJ: Hver er hann?) Segi hann til sín.