02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2874 í B-deild Alþingistíðinda. (4998)

Afgreiðsla þingmála

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það mun vera rétt hjá hv. 2. landsk., að hann sé aðeins í einni nefnd. En þessi n. hefir aðeins haft eitt mál til meðferðar, og það er hans eigið stjskrfrv. Svo að það lætur undarlega í eyrum, að hann kvarti um önnur nefndarstörf.