22.03.1933
Neðri deild: 33. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (622)

13. mál, heimild til að afmá veðskuldbindingar úr veðmálabókum

Frsm. (Guðbrandur Ísberg):

Allshn. hefir haft frv. þetta til athugunar og leggur til, að það verði samþ. óbreytt. Það er vitanlegt um flestar veðmálabækur, að þær eru meira og minna ónákvæmar, sökum þess, að menn hirða ekki um að láta aflýsa skjöl og samninga, og eina leiðin til að hreinsa til í veðmálabókunum virðist vera þessi, sem hér er farið fram á. N. hefir ekki séð ástæðu til að breyta tímatakmörkunum og leggur því einhuga til, að frv. verði samþ. óbreytt.