15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (703)

19. mál, sjúkrahús og fl.

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og gekk þar í gegn breytingalítið. Ég hygg vera nauðsynlegt, að sett verði lög um þessar stofnanir. Ég vil vona, að í þessari hv. d. verði ekki ágreiningur um þetta mál, heldur fái það vinsamlegar viðtökur. Í hv. Nd. var það fyrir hv. allshn., og legg ég til, að því verði vísað til sömu hv. n. þessarar deildar, að lokinni þessari umræðu.