15.03.1933
Efri deild: 25. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 787 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

31. mál, tilbúningur og verslun með smjörlíki og fl.

Frsm. (Jón Jónsson):

Ég skal geta þess, að n. er að sjálfsögðu fús á að taka málið til frekari athugunar, bæði þau ákvæði, sem í frv. felast um aðrar eftirlíkingar en smjörlíki, og eins hitt, hvort ekki geti komið til mála að banna alveg innflutning á þessum vörum. Þetta er n. sem sagt að sjálfsögðu fús að athuga.