21.03.1933
Efri deild: 30. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (823)
25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar
Jakob Möller:
Ég vildi beina því til hæstv. forseta, hvort hann mundi ekki geta skorið svo úr, að orðin „næstkomandi ár“ í brtt. n. séu prentvilla, því að þótt svo sé ef til vill ekki beinlínis, þá er þó hér um „lapsus“ að ræða, sem svo er kallað, og mega þessi orð að skaðlausu falla niður. Mætti þá lagfæra þetta í prentun.