22.04.1933
Neðri deild: 55. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (849)

25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég vil einungis styðja till. hv. þm. Mýr. um, að málið sé tekið út af dagskrá, sérstaklega þar sem ég heyrði, að n. er á móti brtt. þeirri, sem flutt er á þskj. 292. Ég hygg, að ekki verði svo langt þangað til hv. þm. Seyðf. kemur, að málinu sé nein hætta búin, þó umr. sé frestað þangað til.