17.02.1933
Efri deild: 3. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (880)

5. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Þetta frv. er shlj. frv., sem var, eins og alkunnugt er, rætt á síðasta þingi og þá afgr. sem lög fyrir yfirstandandi ár. Nú fer stj. þess á leit, að þingið framlengi þau lög fyrir árið 1934. Ástæðurnar fyrir flutningi frv. eru hinar sömu og voru á síðasta þingi, þar sem ekki er sýnilegt, að ríkissjóður geti verið án þeirra tekna á næsta ári, er það veitir. Ég vænti því, að hv. þdm. taki þessu frv. vel, og óska, að það verði að lokinni umr. látið ganga til fjhn.