21.04.1933
Efri deild: 52. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í B-deild Alþingistíðinda. (931)

24. mál, vega og brúargerð

Frsm. (Halldór Steinsson):

Ég vil aðeins endurtaka þá ósk mína, að hæstv. forseti taki málið út af dagskrá að þessu sinni og veiti n. tækifæri til að taka þetta til athugunar, sem ekki er hægt nú, þar sem einn nm. er veikur.