07.04.1933
Efri deild: 45. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (975)

34. mál, fjárþröng hreppsfélaga

Páll Hermannsson:

Ég vil aðeins benda á, að þetta er orðið svo flókið, að full ástæða virðist til þess að taka málið út af dagskrá, svo að þm. geti betur áttað sig á öllum þessum brtt., vatill. og brtt. við brtt., sem fram hafa komið. (Forseti: Til þess ætti að vera nóg að fresta atkvgr.).