20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (1037)

21. mál, rafveita Austur-Húnavatnssýslu

Jón Jónsson:

Sem flm. þessarar þáltill. og forstöðumaður fyrirtækisins get ég ekki stillt mig um að votta þakklæti mitt fyrir mjög góðar undirtektir undir þetta mál.