29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (1132)

66. mál, bráðabirgðaútflutningsskýrlsur

Ólafur Thors:

Ég vildi beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann taki málið út af dagskrá. Það er flutt af sjútvn., og kemur ekki annað fram en að hún standi öll að því, en þar gætir nokkurs misskilnings. Nú hafa nm. komið sér saman um, að málið gangi ekki lengra á þessum fundi, og óskar n. að taka það til nánari athugunar.