20.11.1933
Efri deild: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (116)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Jónsson:

Ég geri ráð fyrir, að forlög þessa frv. séu nú þegar ákveðin hér í hv. Ed., eins og í hv. Nd. Sé ég því ekki ástæðu til að hefja umr. um það, en læt þess þó getið, eins og ég skýrði frá á

síðasta þingi, að ég tel á því svo mikla annmarka, svo stórlega skert áhrifavald sveitanna á þingið, að ég sé mér ekki fært að greiða því atkv. mitt.