28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í D-deild Alþingistíðinda. (1178)
40. mál, útrýming fjárkláðans
Bjarni Ásgeirsson:
Ég hefi skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, en sá fyrirvari þýðir ekki það, að ég sé ekki þeim till. sammála, sem n. ber fram, heldur þýðir hann það, að ég er ekki vel ánægður með orðalagið á nokkrum kafla nál., þar sem lýst er yfir af n. hálfu, að hún leggist á móti málinu vegna þess, að undirbúningur sé ónógur og framkvæmd vafasöm í þeirri mynd, sem till. gerir ráð fyrir.
Ég fyrir mitt leyti er ekki í neinum vafa um, ef einlægur vilji þings og stj. er fyrir hendi til þess að framkvæma till. eins og hún upphaflega var borin fram af hálfu flm., þá væri næg heimild til þess að gera það og nægur tími til undirbúnings fyrir næsta vetur. En vegna þeirra undirtekta, sem till. hefir fengið hér í þinginu, bæði hjá ýmsum hv. þm. og hjá hæstv. atvmrh., þá geri ég ráð fyrir, að hægara verði að koma till. fram í þeirri mynd, sem landbn. var ásatt um að leggja til, eins og komið hefir fram í þeim ummælum, sem fallið hafa hjá hæstv. atvmrh. og fleirum, sem talað hafa í þessu máli. Það er sérstaklega undirstrikað í till. n., að undirbúin verði rannsókn á þeim liðum, sem þar eru tilgreindir, og ég get vel fallizt á, ef allir vilja sameinast um það, að þá borgi sig betur að bíða 1 eða 2 ár heldur en að það verði gert árinu fyrr og heimild til þess undirbúnings vanti, sem nauðsynlegur er.
Ég er sannfærður um, eftir þeim fregnum, sem ég hefi fengið víðsvegar að af landinu, að aldrei hafi borið meira á fjárkláða í landinu en nú, því að mér er sagt úr sumum sveitum, að allt sé löðrandi í kláða og fé nú undir veturinn nær dauða komið, og ég er viss um, að fyrir hann verður ekki tekið nema með almennri útrýmingarböðun, og fyrir því við ég til samkomulags við þá, sem öðruvísi líta á þetta mál, slá hví frekar á frest, ef það fengi þá þann undirbúning, sem allir álíta, að nauðsynlegur sé. Það var aðeins þessi fyrirvari, sem ég vildi gera grein fyrir.