13.11.1933
Efri deild: 8. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (1183)

13. mál, byggingu og ábúð á jörðum, sem eru almannaeign

Flm. (Jónas Jónsson):

Þetta mál lá fyrir deildinni síðastl. vetur, en vegna anna landbn. vannst henni ekki tími til að afgr. Það. Þó tók n. vel í málið, enda var það orðið vinsælt í landinu, með því að það tryggði rétt nálægt helmings leiguliða, en þeir eru nærri helmingur allra bænda á landinu. Frv. mælir með sér sjálft. Ég vil benda á það, að þar sem þetta þing mun standa a. m. k. hálfan mánuð enn, þá átti að vera hægt að afgr. það og útvega börnum leiguliða þegar í stað nokkra framtíðarbyggingu. Óska ég, að málinu verði, að umr. lokinni, vísað til landbn.