02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í D-deild Alþingistíðinda. (1289)

63. mál, áveitur

Jónas Jónsson:

Ég vil styðja að framgangi þessar þáltill. hv. 2. þm. Árn., af því að hún fjallar um nauðsynlegt mál, en ég er eins og hann og fleiri í nokkrum vafa um, hvernig ýms atriði till. verða bezt leyst. Ég álít hví óhjákvæmilegt, að málið fari í n., og vil ég leggja til, að því verði vísað til landbn. Ég er sammála hv. flm. um, að það muni reynast heppilegt að fá Búnaðarfél. Ísl. málið til meðferðar, en þó tel ég líka nauðsynlegt að fá að vita, áður en till. er afgr. her, hvað Búnaðarfél. telur réttast, að gert verði í málinu.