02.12.1933
Efri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í D-deild Alþingistíðinda. (1300)
63. mál, áveitur
Atvmrh. (Þorsteinn Briem):
Þessi þáltill. er í þremur liðum. Um fyrsta liðinn vil ég taka það fram, að ég tel æskilegt, að hann verði samþ., vegna þess að reglur þær og samþykktir, sem munu hafa verið gerðar um viðhald hinna stærri áveitufyrirtækja landsins, munu að mörgu leyti vera mjög ófullkomnar. Ég hygg það til bóta að undirbúa lagasetningu um það efni, með því að á sumum stöðum mun það vera reglan að gera sem minnst til viðhalds og endurbóta þeim mannvirkjum, sem hafa kostað mikið fé. Og þar á sannarlega við um þær orðtækið: „Vandi er að gæta fengjns fjár“.
Um hina aðra liði till. er öðru máli að gegna. Annar liður till. hljóðar um það, að stj. undirbúi frv. til l., er fari í þá átt, að öllum, sem áveitur hafa gert, verði veitt jafnhæg aðstaða um greiðslu stofnkostnaðar eins og þeim, sem fengið hafa bezt kjör. Það er út af fyrir sig mikið rannsóknarefni, og ef fram ætti að fara full rannsókn á því efni, þá hygg ég, að hún mundi tæplega verða gerð an þess að hún kostaði töluvert fé. Það er ekki að öllu leyti hægt að vitna í l. frá síðasta þingi um Flóaáveituna, vegna þess, að þar var um sérstaka kreppuhjálp að ræða.
Þær áveitur, sem gerðar hafa verið hér á landi, hafa reynzt misjafnlega. Sumar hafa reynzt gagnslausar, eða því sem næst, en sumar hafa borgað sig á skömmum tíma. Það er þess vegna ekki ósanngjarnt, þó að öllum þeim, sem þeirra hafa not, sé ekki gerður jafngreiður aðgangur að ríkissjóðnum. Ef það er tilgangur flm. að veita öllum sem jafnasta aðstöðu, þá verður að lita á það, að síðar meir verður væntanlega ráðizt í fleiri áveitufyrirtæki. Þarf þess því vel að gæta að mynda ekki þau fordæmi, sem geta orðið varhugaverð vegna fjárhags ríkissjóðs. ég hygg a. m. k., að þetta atriði sé ekki svo mjög aðkallandi, að það sé alveg bráðnauðsynlegt að fá þetta mál undirbúið fyrir næsta þing, sem kemur saman í síðasta jagi 1. okt. í haust, heldur ætla ég, að undirbúningur þessa máls mætti jafnvel taka lengri tíma. (EE: ) Það er einungis sagt, að þetta þyki æskilegt).
Um 3. lið till. er það að segja, að það liggur náttúrlega í hlutarins eðli, að framkvæmdir í því máli, sem þar er nefnt, gætu ekki gerzt nema með lagasetningu og þar að auki fjárveitingu. Ég hygg a. m. k., að engin stj. mundi sjá sér fært að leggja út í þær án sérstakrar löggjafar. Enda hefir flutningi málsins verið á þá leið hagað hér í hv. deild.
Tilraunastöðvar hafa nú verið reistar í mörgu skyni. Það hefir og verið byrjað á ýmsum gróðurrannsóknum, t. d. rannsókn á gróðrarríki stærstu áveitunnar, sem um er að ræða hjá okkur. Það er æskilegt, að þær geti haldið áfram. Einnig gæti komið til greina að gera tilraunir um fræsáningu og annað slíkt. En fullkomna tilraunastöð tel ég mjög vafasamt, hvort rétt er að reisa að svo komnu máli. Ég hygg, að til þess þurfi miklu lengri og rækilegri undirbúning en hægt er að gera fyrir næsta þing, áður en komið geti til þess, að löggjöf verði sett um það efni.
Ég tek ekki undir það, sem stungið hefir verið upp á, að málinu verði vísað til n., en ég legg til, að till. verði borin upp til atkv. í þrennu lagi. Og mæli ég þá með 1. lið till., en á móti hinum liðunum.