07.12.1933
Efri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (1344)

77. mál, dýrtíðaruppbót

Frsm. (Jón Þorláksson):

Ég get staðfest það, að fjhn. mælir með till. Sinni á þskj. 325 um að þál. verði samþ. En þessa brtt. á þskj. 341 er ég nú fyrst að sjá, svo að n. hefir ekki haft tækifæri til að taka afstöðu til hennar. Annars felst það í till. n., að hún ætlast til, að dýrtíðaruppbótin verði greidd að öllu leyti eftir sömu reglu og gert var á síðastl. ári. Og þar sem mér skilst, að brtt. á þskj. 341 víki að einhverju leyti frá því, þá hygg ég, að hún hafi ekki stuðning n.