07.12.1933
Efri deild: 28. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í D-deild Alþingistíðinda. (1346)

77. mál, dýrtíðaruppbót

Frsm. (Jón Þorláksson):

Ég vil aðeins taka það fram út af því, sem hv. 2. þm. S.-M sagði, að hann teldi ekki ástæðu til, að greidd yrði uppbót á hærri laun en 3500 kr., að dýrtíðaruppbótin er nú útreiknuð þannig, að hún er í rauninni ekki greidd á hærri launaupphæð en 3000 kr.