08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í D-deild Alþingistíðinda. (1481)

84. mál, áfengismálið

Jóhann Jósefsson:

Ég hélt, að ekki væri nauðsynlegt að bera þessa till. undir atkv. þingsins, úr því 9 þm. hafa skrifað undir hana. Annars ræður forseti því, hvort hann vill hindra, að Alþ. fái að segja já eða nei um það, hvort eigi að taka þjóðarviljann til greina eða ekki.