08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 564 í D-deild Alþingistíðinda. (1501)

84. mál, áfengismálið

Thor Thors:

Ég hefi borið fram þetta skjal, og er meining mín a. m. k. — og ég held allra, sem hafa undirritað það — að umr. sé slitið tafarlaust og engir fleiri tali, hvort sem þeir hafa kvatt sér hljóðs eða ekki. Ég fæ ekki séð, að þessar umr. sannfæri nokkurn þm. um, hvernig hann eigi að greiða atkv., og tel þær þvingarlausar og óþarfar.