08.12.1933
Sameinað þing: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í D-deild Alþingistíðinda. (1514)

84. mál, áfengismálið

Jakob Möller:

Ég tilkynnti hæstv. forseta breyt.; og ef það vantar, að henni væri lýst, þá vil ég vekja athygli á því, að það er sök hæstv. forseta, því að till.maður þarf ekki annað að gera en að afhenda till.; forsetans er að lýsa þeim. Og ef í þessu tilfelli verður úrskurðað, að breytingin komist ekki að, þá verð ég að líta svo á, að það hafi verið undirmál milli hv. þm. N.-Ísf. og hæstv. forseta um það, að lýsa ekki breytingunni.