09.12.1933
Sameinað þing: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í D-deild Alþingistíðinda. (1566)

84. mál, áfengismálið

Jakob Möller:

Um leið og ég vísa á bug og heim til föðurhúsanna ummælum hv. þm. N.-Ísf., þá vil ég geta þess, að ég hefi ekki gert ráð fyrir, að aðrir greiddu atkv. með till. minni en þeir, sem vilja virða þjóðarviljann í þessu máli, hlíta þeim úrslitum, er þjóðin gaf með atkvgr. í haust. Ég hefi því hvorki búizt við því, að menn eins og hv. þm. N.-Ísf. eða aðrir þeir, sem vilja virða þjóðarviljann að vettugi, greiddu henni atkv. — Ég segi já.