09.12.1933
Sameinað þing: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í D-deild Alþingistíðinda. (1567)

84. mál, áfengismálið

Jóhann Jósefsson:

Þótt ég geti tekið undir með hv. þm. G.-K. um það, að þáltill. okkar sé í alla staði þingleg og réttmæt, þá viðurkenni ég þó eins og hann, að með samþykkt þessarar till. er höfuðkröfum okkar náð, sem se, að stjórnin undirbúi málið og leggi það fyrir næsta þing. Og í trausti þess, að svo verði, segi ég já.