08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í D-deild Alþingistíðinda. (1643)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Ingólfur Bjarnarson:

Ég fæ ekki annað séð en að með þessari till. sé verið að stofna til verulegs misréttis milli þessara vesalinga, þar sem gert er ráð fyrir, að hið opinbera greiði allan kostnað af uppihaldi örfárra þeirra. Nú munu vera um 200 fábjánar á landinu, og aðeins örfáir þeirra kæmust á þetta hæli. Ég tel því sjálfsagt, að málið sé athugað í n.