08.12.1933
Neðri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í D-deild Alþingistíðinda. (1644)

55. mál, meðgjöf með fávitum

Tryggvi Þórhallsson:

Ég vil upplýsa það út af ræðu hv. 2. þm. N.-M., að það er þegar hægt að taka ein 20–30 börn þarna á hælið. Og ég held, að eftirspurnin verði ekki meiri til að byrja með. Viðvíkjandi orðum hv. þm. A.-Húnv. vil ég benda honum á, að upphæðin, sem ætlazt er til að veitt verði, er takmörkuð.