09.12.1933
Neðri deild: 31. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í D-deild Alþingistíðinda. (1712)

87. mál, samvinnubyggðir

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég sé ekki ástæðu til þess að vísa till. til stj., þótt hv. Ed. hafi samþ. till. um svipað efni. sú till. var í allt öðru formi en þessi, sem nú er til umr. Ég legg því til sem frsm. n., að till. verði afgr. svo sem hún liggur hér fyrir.