15.11.1933
Neðri deild: 10. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í D-deild Alþingistíðinda. (1933)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Forseti (JörB):

Út af nokkrum ummælum í ræðu hv. þm. G.-K. vil ég beina þeirri ósk til hv. þdm., að þó þeir hafi einhverntíma orðið fyrir persónulegri móðgun frá utanþingsmönnum, þá gæti þeir þess að segja hér ekki annað en það, sem við á, sér staklega þar sem hlutaðeigandi aðilar eru hér ekki við og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér á þessum vettvangi.