28.11.1933
Neðri deild: 21. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í D-deild Alþingistíðinda. (1973)

19. mál, kaup á húsi og lóð góðtemplara í Reykjavík og húsbyggingarstyrkur

Jakob Möller:

Ef hv. þm. V.-Sk. vill lýsa yfir vilja sínum í þessu máli, þá á hann auðvitað að gera það með því að draga dagskrártill. til baka og koma með brtt. sama efnis við síðari umr. Og vil ég beina þeirri ósk til hans, að hann taki dagskrártill. sína aftur nú þegar, svo að hægt sé að bera fram efni hennar með brtt. við þáltill., því að annars geta þeir, sem eru algerlega á móti málinu, misnotað dagskrártill., þannig, að samþ. hana til þess að eyðileggja málið í heild.