06.12.1933
Neðri deild: 27. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (227)

2. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Thor Thors):

Ég vil minna hæstv. forseta á það, að hann fékkst ekki um daginn til þess að fresta umr. um kaup á gamalli síldarverksmiðju, þó að frsm. minni hl. væri fjarverandi. Ég tel víst, að við í stjskrn. gætum verið búnir að bera ráð okkar saman svo snemma, að fundur gæti aftur orðið kl. 10, og væri þá séð fyrir öllu.