09.12.1933
Sameinað þing: 14. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

2. mál, kosningar til Alþingis

Thor Thors:

Ég vil geta þess f. h. stjskrn. Nd., að þær brtt., sem komið hafa fram við frv. um kosningar til Alþ. í Ed., miða allar að því að samræma frv. við þær breyt., sem gerðar voru á því í Nd.

Ég vil jafnframt geta þess, að enda þótt einstakir nm. í stjskrn. Nd. séu óánægðir með það, hverja afgreiðslu þetta frv. hefir fengið í þinginu, vill stjskrn. í heild leggja til, að þetta frv., eins og það nú liggur fyrir, verði samþ.