27.11.1933
Neðri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í B-deild Alþingistíðinda. (306)

3. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. (Bergur Jónsson):

Allshn. hefir nú borið fram að nýju brtt., sem fer í sömu átt og sú till., er áður var fram borin af n., og þó allmikið breytt. En þar sem aðallega voru fettir fingur út í orðalag fyrri till., vænti ég þess, að hv. d. taki þessari betur en hinni, sem var drepin í hálfgerðu ógáti.