22.11.1933
Neðri deild: 16. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (358)

6. mál, útflutningsgjald af síld o.fl

Frsm. (Jakob Möller):

Frv. þetta er borið fram af hæstv. stjórn, og er shlj. bráðabirgðalögum, sem hún gaf út um þetta efni síðastl. sumar, sakir þess að það þóttu formgallar á lögum þeim um útflutningsgjald af síld, sem afgr. voru frá síðasta þingi. Að efni til er frv. þetta shlj. lögunum, sem afgr. voru frá síðasta þingi, og leggur því n. til, að það verði samþ. óbreytt.