17.11.1933
Efri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

Lausnarbeiðni stjórnarinnar

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Umrædd skeyti hefi ég ekki við hendina, en úr þessum vafa er þó hægt að leysa, því hv. þm. geta fengið að sjá þau, er þeir vilja. Til konungs sendi ég aðeins lausnarbeiðnina, en konungsritara sendi ég nánari skilgreiningu og gat þess þar, að það væri að ósk Framsfl., að lausnarbeiðnin væri send. En skeytin, sem send hafa verið, getur hver hv. þm. sem vill fengið að sjá.

Á 12. fundi í Nd., s. d., utan dagskrár, mælti