17.11.1933
Neðri deild: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

Lausnarbeiðni stjórnarinnar

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég hefi ekki þessi skeyti meðferðis, en get svarað fyrirspurn hv. þm.

Þar sem ég baðst lausnar fyrir hönd stj., þá gerði ég þá grein fyrir, að þingflokkur Framsóknarflokksins hefði óskað þess. Gat ég ekki um meiri eða minni hl., sem ekki var heldur ástæða til, heldur þess eins, að þingflokkurinn í heild hefði óskað. En skeytið get ég sýnt hvenær sem er.

Ennfremur gaf ég konungsritara upplýsingar um formenn flokkanna og styrkleika þingflokkanna.

II. Afgreiðsla þingmála.

Á 29. fundi í Ed., 8. des., utan dagskrár, mælti