08.12.1933
Efri deild: 29. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

Afgreiðsla þingmála

Páll Hermannsson:

Ég vil f. h. landbn. svara hv. 4. landsk. Þetta frv. um ábúð á jörðum í almannaeign sendi landbn. bæði til Búnaðarfélags Íslands og atvinnumálaráðuneytisins, og enn þann dag í dag hafa ekki nein svör komið frá þessum aðilum.

Ég hefi sem form. þessarar n. spurzt fyrir um þetta mál hjá Búnaðarfélaginu, og mér var sagt, að ekki væri búið að taka ákvörðun um það þar. Landbn. taldi sér ekki fært að láta uppi sínar skoðanir á málinu, nema hún fengi álit úr báðum þessum stöðum. Það er eingöngu af þeirri ástæðu, sem n. hefir ekki tekið neina ákvörðun um málið.