08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (49)

Afgreiðsla þingmála

forseti (JBald):

Forsrh. hefir beðið mig að bera það upp fyrir alþm., hvort það sé eigi ósk þeirra, að Alþingi sé slitið, þegar frv. til l. um kosningar til Alþingis hefir náð fullnaðarsamþykki á Alþingi. Ráðh. hefir óskað, að atkvgr. fari nú fram um þetta, og mun ég verða við þeirri ósk og bera þetta undir hv. alþm.