16.11.1933
Neðri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (662)

20. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Pétur Ottesen:

Út af ágreiningi um það, hvar væntanleg síldarverksmiðja á Norðurlandi ætti að standa, tók ég það fram, að ég teldi rétt að leita álits frá sjómönnum og útgerðarmönnum, sem síldveiðar stunda við Norðurland. Ég veit ekki, hvort hv. n. hefir sinnt þessari beiðni minni eða hvort hún hyggst að taka það upp í frv. Ef svo er ekki, þá ætla ég að leyfa mér að bera fram brtt. við frv. við 3. umr. málsins.