18.11.1933
Neðri deild: 13. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (779)

28. mál, innflutningur á sauðfé til sláturfjárbóta

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Síðan brtt. þessar á þskj. 61 komu fram, hefi ég ekki getað haldið fund í n., og þess vegna hefir n. ekki getað tekið afstöðu til þeirra. Ég vil því leyfa mér að fara fram á það við hv. flm. brtt., að hann leyfi, að þær komi ekki fyrir fyrr en við 3. umr.