16.11.1933
Neðri deild: 11. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í C-deild Alþingistíðinda. (956)
27. mál, lax og silungsveiði
Jón Pálmason:
Ég vil aðeins taka það fram, að það fer fjarri því, að þessi breyt. á laxveiðalögunum sé nægileg. Ég tel löggjöfina meingallaða, og þeir gallar eru svo miklir, að ég tel vafasamt, að hægt verði að bæta úr þeim á þessu þingi. Ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í þetta að svo komnu máli, en vildi óska eftir því að vera í samráði við hv. þm. Borgf. og aðra, sem bera vilja fram brtt. við 2. umr. málsins.