21.11.1933
Neðri deild: 15. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í C-deild Alþingistíðinda. (962)

27. mál, lax og silungsveiði

Pétur Ottesen:

Við 1. umr. skaut ég því til hv. n., hvort hún vildi ekki athuga í sambandi við atvmrh. eitt eða tvö atriði í þessu máli, sem mér er kunnugt um, að leitað hefir verið til ráðuneytisins um. Nú vil ég spyrja n., hvort hún hafi orðið við þessum tilmælum mínum, að tala við atvmrh. um þetta, og ef svo er ekki, hvort hún ætlar að gera þetta eða ekki.