27.11.1933
Neðri deild: 20. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í C-deild Alþingistíðinda. (999)

31. mál, virkjun Fljótár

Bernharð Stefánsson:

Það er gleðilegt, að svo virðist sem þess sé að vænta, að hv. fjhn. afgr. þetta mál bráðlega. Ég get annars ekki stillt mig um að benda á það, að hv. fjhn. virðist ekki alltaf leggja svo mikla áherzlu á að afla sér fagþekkingar á málum, áður en hún gerir till. í þeim. eins og í þessu tilfelli, því að n. brá ólíkt fljótar við um afgreiðslu annars samskonar máls, sem nú er í hann veginn að fá afgreiðslu þingsins.