01.10.1934
Sameinað þing: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1)

Konungsboðskapur

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir og allir á fundi:

1. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

2. Bergur Jónsson, þm. Barð.

3. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

4. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

5. Bjarni Bjarnason, 2. þm. Árn.

6. Einar Árnason, 2. þm. Eyf.

7. Emil Jónsson, þm. Hafnf.

8. Eysteinn Jónsson, 1. þm. S.-M.

9. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

10. Garðar Þorsteinsson, 8. landsk. þm.

11. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

12. Gísli Sveinsson, þm. V.-Sk.

13. Guðbrandur Ísberg, þm. Ak.

14. Guðrún Lárusdóttir, 5. landsk. þm.

15. Gunnar Thoroddsen, 11. landsk. þm.

16. Haraldur Guðmundsson, þm. Seyðf.

l7. Hermann Jónasson, þm. Str.

18. Héðinn Valdimarsson, 2. þm. Reykv.

19. Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M.

20. Jakob Möller, 3. þm. Reykv.

21. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

22. Jón Auðunn Jónsson, þm. N.-Ísf.

23. Jón Baldvinsson, 4. landsk. þm.

24. Jón Ólafsson, 1. þm. Rang.

25. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

26. Jón Sigurðsson, 7. landsk. þm.

27. Jónas Guðmundsson, 6. landsk. þm.

28. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

29. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

30. Magnús Guðmundsson. 1. þm. Skagf.

31. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

32. Magnús Torfason, 2. landsk. þm.

33. Ólafur Thors, þm. G.-K.

34. Páll Hermannsson, 1. þm. N.-M.

35. Páll Zóphóníasson, 2. þm. N.-M.

36. Páll Þorbjörnsson, 3. landsk. þm.

37. Pétur Halldórsson, 5. þm. Reykv.

38. Pétur Magnússon, 2. þm. Rang.

39. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

40. Sigfús Jónsson, 2. þm. Skagf.

41. Sigurður Einarsson, 9. landsk. þm.

42. Sigurður Kristjánsson, 6. þm. Reykv.

43. Sigurjón Á. Ólafsson, 4. þm. Reykv.

44. Stefán Jóhann Stefánsson, 1. landsk. þm.

45. Thor Thors, þm. Snæf.

46. Þorbergur Þorleifsson, þm. A.-Sk.

47. Þorsteinn Briem, 10. landsk. þm.

48. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.

Ókominn var til þings:

Hannes Jónsson, þm. V.- Húnv.

Konungsboðskapur.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sæta, stóð upp forsætisráðherra, Hermann Jónasson, og las upp opið bréf, er stefnir Alþingi saman til reglulegs fundar mánudaginn 1. október 1934, dags. 5. september. (Sjá Stjtíð. 1934, A. bls. 100).

Að því búnu las forsætisráðherra upp konungsboðskap sér til handa til þess að setja Alþingi, dags. s. d. (Sjá Stjtíð. 1934, A. bls. 101). Samkvæmt því umboði lýsti forsætisráðherra yfir því, að Alþingi væri sett, og mælti síðan:

„Minnumst ættjarðarinnar og konungsins!“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.