20.11.1934
Neðri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)
22. mál, verkamannabústaðir
Thor Thors:
Kjarni þessa máls er í raun og veru sá, að hér í Rvík hefir verið stofnað byggingarfélag með 350 mönnum, sem fellur undir þessi l., sem hér um ræðir, mönnum, sem óska þess að mega hafa sinn sérstaka félagsskap, en vilja ekki byggja með því sniði, sem hv. 2. þm. Reykv. vill vera láta, og vilja ekki lúta forustu hans í þessu máli. Nú er aðeins spurt um þetta: Ætlar Alþ. að drepa þennan félagsskap eða lofa honum að lifa áfram? Ég fæ ekki séð, hvaða ástæða er til þess að meina þessum mönnum að notfæra sér þessi hlunnindi, sem í þessari löggjöf felast. Það er heldur engin ástæða til, nema sú, að sósíalistar hér á þingi vilja koma þessum málum algerlega undir sína stjórn. Þetta vita allir hv. þdm., og líka þeir, sem koma hér með yfirklórsástæður. Þeir verða að skilja það, að okkur er það ljóst, að þeirra afstaða byggist eingöngu á löngun til þess að gera sósíalista hér í þessari hv. d. ánægða.
Ræðu hv. þm. V.-Ísf. þarf ég litlu að svara. Honum finnst það eðlilegt, að rauði fáninn hafi verið látin blakta yfir verkamannabústöðunum, af því að einhverjir verkamenn, sem byggðu húsin, óskuðu þess. Það eru næsta einkennilegar ástæður, ef þeir, sem vinna að byggingu húsanna, eiga að ráða því, hvaða merki þau bera, en ekki eigendur þeirra. Hér virðist hafa farið saman vilji þeirra, sem stjórna þessum framkvæmdum, og svo þeirra, sem unnu við byggingarnar, um það, hvaða merki skyldu höfð, og það bendir aftur til þess, að það sé rétt, sem hér hefir verið staðhæft, að hér sé eingöngu um flokksmenn Alþfl. að ræða. Hól hv. þm. V.-Ísf. um hv. 2. þm. Reykv. kom mér ekki á óvart, eins og nú er hagað flokkaskipun hér á landi.