09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (1069)
26. mál, vinnumiðlun
Pétur Halldórsson:
Mér virðist augljóst, hvert er tilefni og tilgangur þessa frv. Tilefnið er sú atvinnuskrifstofa, sem bæjarstjórn Rvíkur kom hér á stofn nýlega, en tilgangurinn er að taka þessi mál af meiri hl. bæjarstjórnar og fá þau í hendur öðrum meiri hl.
Ég verð að taka undir það, sem hv. þm. Vestm. sagði um þetta frv., og sérstaklega vil ég benda á það, að hér er of langt stigið og of stórt af stað farið, áður en nokkur reynsla er fengin um þetta á voru landi. Væri ekki réttara fyrir þingið að sjá, hvernig þessari tilraun bæjarstjórnarinnar reiddi af, áður en sett eru l., sem geta valdið því, að bæjarfél. verði fyrirskipað að koma á slíkri stofnun, áður en reynsla er fengin fyrir því, að slíkt sé til gagns? Það er líklegt, að svona stofnun verði að mestu gagni í Rvík, og ef það sýnir sig, að þessi skrifstofa kemur að verulegum notum hér og önnur bæjarfél. finna ríka þörf hjá sér til að koma slíkri stofnun á, þá munu þær einnig koma upp þar, og það án allrar lagasetningar.
Af þessum ástæðum álít ég réttast að setja ekki slík l. að svo stöddu, því að eins og hv. þm. Vestm. sagði, þá er þess engin þörf eins og nú standa sakir.