24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1125)

26. mál, vinnumiðlun

Bergur Jónsson:

Ég vil benda hæstv. forseta á, að þessa till. á að skilja á sama hátt og þá till., sem borin var fram í fyrra í áfengismálinu, - að slíta umr. tafarlaust, og fái þeir ekki heldur að tala, sem eru á mælendaskrá. Það var skilyrðið, þegar till., orðuð á sama hátt og þessi, var borin fram í Sþ.