19.11.1934
Efri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

7. mál, gengisviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég legg til, að þessi brtt. hv. 1. þm. Reykv., sem fer fram á að framlengja gengisviðaukann á kaffi og sykri, verði felld, af þeirri ástæðu, að stj. vill lækka verðtoll á þessum vörum, sem eru ákaflega hátt tollaðar, en verða þó að teljast nauðsynjavörur fyrir mikinn hluta þjóðarinnar. Stj. hefir ekki breytt afstöðu sinni frá því við fyrri umr. málsins.