30.10.1934
Neðri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)
26. mál, vinnumiðlun
Forseti (JörB):
Mér þykir leiðinlegt að þurfa að leggja þá raun á hv. 8. landsk., að hann skuli þurfa að tala hér svo seint. Ég get þó ekki við því gert, því að ég hefi notað daginn eins og venja er til, til fundarhalda, en hv. þm. sér, hvað skammt er komið áleiðis með dagskrána. Hinsvegar hefi ég fengið ákúrur fyrir það hér í d., að halda ekki kvöldfundi, þegar umr. ganga úr hófi fram. Og þá verður mér vant, ef ég á að hafa fundi stutta, en þó að sjá til þess, að mál komist áfram. Ég verð því að taka það ráð að þrauka, þó að mér sé engin þægð í að þreyta hv. þm. úr hófi fram.