10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2833 í B-deild Alþingistíðinda. (121)
Afgreiðsla þingmála
Forseti (JBald):
Þetta verður tekið til íhugunar svo fljótt sem verða má vegna starfa þingsins. En eins og ég tók fram áðan, er beðið eftir því, að d. ljúki við það mesta af sínum störfum, og vona ég, að það muni ekki líða á löngu áður en þetta mál verður tekið fyrir.